Lífið

ÍR-ingarnir í Nice minna landsmenn á mikilvægi sólarvarnar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Elvar Guðmundsson og Sveinbjörn Claessen hafa húmor fyrir sjálfum sér og eru miklir gleðigjafar.
Elvar Guðmundsson og Sveinbjörn Claessen hafa húmor fyrir sjálfum sér og eru miklir gleðigjafar.
Afar sólríkt er allajafna í frönsku borginni Nice og hefur engin undantekning verið á því síðastliðna daga. Þangað hafa Íslendingar stefnt undanfarna daga og gera enn. Sumir hafa verið í Frakklandi í rúmar tvær vikur en aðrir eru að mæta á sinn fyrsta leik á EM.

ÍR-ingarnir og vinirnir Elvar Guðmundsson og Sveinbjörn Claessen eru mættir til Nice en þeir eru öllum hnútum kunnugir þegar kemur að því að fylgja íslenskum landsliðum eftir á stórmótum erlendis. Þeir öskruðu úr sér lungun á EM í Berlín hjá karlalandsliðinu í körfu í fyrra og hafa stutt strákana í Frakklandi af krafti.

Þeirra viðhorf til sólarvarnar er hins vegar ólíkt eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Mætti nefna þá „Allt eða ekkert“ - tvíeykið. Sveinbjörn birtir myndina, í góðu gríni, á Facebook og segir Elvari vini sínum margt til lista lagt en meðhöndlun sólarvarnar af hans hálfu sé stórlega áfátt sbr. myndina. Hann sjálfur sé hins vegar stöðugur með sína 50 vörn. 

Rétt er að minna Íslendinga í Nice eða á leiðinni til frönsku borgarinnar að hafa sólarvörn með sér, eða kaupa hana hið fyrsta, og ekki væri vitlaust að hafa höfuðfat og sólgleraugu við höndina.

Sveinbjörn spilar með meistaraflokki ÍR í körfu og Elvar er formaður körfuknattleiksdeildar. 

Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur áFacebook,Twitterog Snapchat (sport365). 







Fleiri fréttir

Sjá meira


×