Íslenski boltinn

Ingvar: Hef bætt mig á hverju ári síðan ég kom í Stjörnuna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ingvar Jónsson.
Ingvar Jónsson. Vísir/Valli
Ingvar Jónsson, markvörður Íslandsmeistara Stjörnunnar, var í kvöld kosin besti leikmaður Pepsi-deildar karla í fótbolta á þessu tímabili en það voru leikmenn deildarinnar sem völdu hann besta leikmanninn í sumar.

Ingvar bjargaði Stjörnuliðinu margoft með frábærri markvörslu í Pepsi-deildinni í sumar og hélt markinu sínu hreinu í yfir 400 mínútur á lokakaflanum þegar Garðbæingar tryggðu sér titilinn.

„Þetta er búið að vera ólýsanlegt sumar hjá okkur og eiginlega bara frá fyrsta leik. Það hefur allt gengið upp. Meðbyrinn var mikill þegar fór að ganga vel í Evrópukeppninni og þá var komið gríðarlegt sjálfstraust í liðið og menn höfðu trú á því að við gætum klárað þetta," sagði Ingvar í viðtali við Eddu Sif Pálsdóttur í Íslandi í dag í kvöld en sýnt var beint frá verðlaunaafhendingunni á Stöð tvö.  

En hvað varð til þess að þetta tókst hjá Stjörnunni í sumar?

„Það er fyrst og fremst Frikki sjúkraþjálfari. Hann hefur breytt þessum klúbb og það er ekkert grín. Það hefur verið mikil uppbygging undanfarin ár en með tilkomu hans fyrir tveimur árum þá breyttist mikið. Hann er ekki bara sjúkraþjálfari því hann er með vikulega sálfræðifundi þótt að menn séu oft orðnir þreyttir á því. Þetta hefur allt áhrif og hann byggði upp gríðarlega trú í liðinu ásamt þjálfarateyminu og öðrum," sagði Ingvar á meðan mátti sjá Sigga Dúllu og Rúnar Pál Sigmundsdóttir hlæja að orðum Ingvars.

„Það var gríðarleg trú hjá okkur allan tímann að við gætum hampað titlinum," sagði Ingvar.

„Ég hef bætt mig á hverju ári finnst mér síðan ég kom í Stjörnuna fyrir fjórum árum. Ég spilaði mjög vel í allt sumar, alveg frá fyrsta leik og ég hef verið stöðugur í mínum leik sem er mikilvægt fyrir markmann. Ég er gríðarlega stoltur af þessu vali," sagði Ingvar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×