Fótbolti

Ingibjörg: Aldrei verið svona þreytt eftir leik

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Ingibjörg lokar á Vanessa Bürki í leiknum í dag.
Ingibjörg lokar á Vanessa Bürki í leiknum í dag. Vísir/Getty
„Fyrsta markið má skrifa á einbeitingarleysi hjá okkur, þær taka innkast og við gleymum okkur að horfa á boltann í staðin fyrir að elta okkar menn,“ sagði Ingibjörg Sigurðardóttir, miðvörður íslenska landsliðsins, aðspurð hvað hefði farið úrskeiðis í mörkunum tveimur í kvöld eftir 1-2 tap gegn Sviss í samtali við Kolbein Tuma Daðason, blaðamann Vísis í Hollandi.

„Í seinna markinu fer boltinn framhjá mér, ég veit ekki hvort það er að ég hafi misst af mínum manni en allaveganna klárar hún þetta fyrir aftan mig. Við getum og eigum að gera betur þar, við munum skoða þetta því við eigum ekki að fá tvö mörk á okkur.“

Ingibjörg sagðist lítið velta fyrir sér kringumstæðunum en hún er á sínu fyrsta stórmóti.

„Ég er bara að einblína á að spila fótbolta, ég elska að spila fótbolta en það róar mann niður að hafa þessa tvo reynslubolta mér við hlið. Ef ég geri mistök eru þær oftast mættar til að styðja við mig.“

Hún var ekki á því að leggja árar í bát þrátt fyrir að staðan væri slæm.

„Við þurfum að halda áfram, þetta hlýtur að fara að detta með okkur núna. Við erum búnar að leggja okkur allar í þetta, í leiknum í dag vorum við að berjast allt til loka og áttum meira skilið,“ sagði Ingibjörg sem var lúin eftir leik.

„Ég veit ekki hvort ég nái að labba út í rútuna, ég er gjörsamlega búin á því,“ sagði hún að lokum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×