Fótbolti

Indriði langtekjuhæstur Íslendinganna í Noregi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Indriði Sigurðsson, Birkir Már Sævarsson og Steinþór Freyr Þorsteinsson.
Indriði Sigurðsson, Birkir Már Sævarsson og Steinþór Freyr Þorsteinsson. Vísir/AFP/Getty
Skattayfirvöld í Noregi birta í dag upplýsingar um tekjur og álagningu einstaklinga árið 2013 þar í landi. Norskir fjölmiðlar hafa tekið saman upplýsingar um leikmenn norsku úrvalsdeildarinnar en þeirra á meðal eru tólf íslenskir knattspyrnumenn.

Indriði Sigurðsson, varnarmaður og fyrirliði Viking, er í sérflokki með rúmar 40 milljónir í árslaun og 22 milljónir í tekjur eftir skatta.

Birkir Már Sævarsson kemur næstur með 24 milljónir og Steinþór Freyr Þorsteinsson og Pálmi Rafn Pálmason eru hvor með rétt um 20 milljónirnar.

Indriði, sem er 33 ára, hefur verið á mála hjá Viking síðan 2009 en hann hélt utan í atvinnumennsku er hann gekk í raðir Lilleström árið 2000, þá átján ára gamall. Hann hélt til Genk í Belgíu árið 2003 en sneri aftur til Noregs þremur árum síðar og lék þá með Lyn í þrjú og hálft tímabil.

Birkir Már er 29 ára og kom til Brann árið 2008 frá uppeldisfélagi sínu, Val. Pálmi Rafn kom sama ár frá Val til Stabæk en þaðan fór hann til Lilleström árið 2012. Steinþór Freyr hélt utan í atvinnumennsku árið 2010.

Það skal tekið fram að þetta á aðeins við um leikmenn sem léku í Noregi á árinu 2013 og tekur mið af heildartekjum viðkomandi leikmanna á árinu. Útreikningar taka mið af núverandi gengi norsku krónunnar.

Tekjur íslensku leikmannanna í Noregi:

1. Indriði Sigurðsson kr. 40.320.582 (kr. 22.083.267 eftir skatt)

2. Birkir Már Sævarsson kr. 24.287.059 (13.910.801)

3. Steinþór Freyr Þorsteinsson kr. 20.442.236 (11.915.076)

4. Pálmi Rafn Pálmason kr. 19.764.788 (11.603.831)

5. Kristján Örn Sigurðsson kr. 14.374.828 (8.331.567)

6. Matthías Vilhjálmsson kr. 13.473.014 (8.148.265)

7. Jón Daði Böðvarsson kr. 10.868.930 (6.704.285)

8. Guðmundur Kristjánsson kr. 10.781.941 (6.656.338)

9. Arnór Sveinn Aðalsteinsson kr. 10.175.493 (6.377.142)

10. Andrés Már Jóhannesson kr. 7.430.609 (4.895.485)

11. Guðmundur Þórarinsson kr. 4.912.894 (3.223.753)

12. Þórarinn Ingi Valdimarsson kr. 4.636.157 (3.101.418)






Fleiri fréttir

Sjá meira


×