Íslenski boltinn

Indriði: Væri erfitt að fara í annað lið en KR

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir
Indriði Sigurðsson er á leið heim til Íslands eftir að tímabilinu lýkur í Noregi í byrjun næsta mánaðar.

Indriði hefur spilað með Viking í Noregi síðan 2009 en spilaði áður með Lyn og Lilleström þar í landi sem og Genk í Belgíu. Síðast spilaði hann með KR árið 1999.

Bjarni Guðjónsson, þjálfari KR, sagði við Vísi fyrr í dag að það væri vilji KR-inga að fá Indriða til félagsins en að ekkert væri frágengið í þeim efnum.

Sjálfur segist Indriði spenntur fyrir KR, þó svo að hann útiloki ekki önnur lið.

„Ég hef aldrei sagt að það komi bara til greina að spila með KR þó svo að mig langi til að spila þar. Ég viðurkenni að það væri erfitt að fara annað,“ sagði Indriði við Vísi í dag en bætti því við að hann ætti ekki í viðræðum við fleiri lið en KR þessa stundina.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×