Lífið

Illa farnir vinir fara á ferðalag um Ísland

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Strákarnir verða með vikulegan þátt á Vísi.
Strákarnir verða með vikulegan þátt á Vísi. Fréttablaðið/Ernir
„Við Arnar erum með framleiðslufyrirtækið Mint Productions og ég fór í ferðalag í sumar og það varð svona kveikjan að þáttunum. Ég var heillaður af því sem ég sá og það rann upp fyrir mér hvað ég veit í raun lítið um Ísland og það er ekki kúl,“ segir Davíð Arnar Oddgeirsson.

Hann, ásamt Arnari Þór Þórssyni og Brynjólfi Löve, verður með vikulega sjónvarpsþætti á Vísi sem heita Illa farnir.

„Það er svona tvöföld meining í þessu. Við erum alltaf að fara eitthvert og eftir ferðalögin erum við búnir að sofa lítið og verða kalt, svona pínu illa farnir,“ segir Davíð léttur í bragði um nafn þáttanna.

„Við fórum í ferð um Suðurlandið og út úr því kom skemmtilegt myndband. Þegar við vorum búnir að klippa myndbandið spratt fram þessi hugmynd, að ferðast um allt Ísland. Svo fórum við bara af stað.“ Félagarnir stefna á að heimsækja alla landshluta í þáttunum.

„Sumt er skipulagt og annað handahófskennt, við höfum allir gaman af því að detta inn á eitthvað algjörlega „random“," segir Davíð.

„Seinustu helgi fórum við að Mývatni. Við rötuðum eiginlega ekki neitt, þannig séð. Við vorum að leita að Grjótagjá, leynistað sem er algjör náttúruperla. Fengum leiðbeiningar frá heimamanni en við misskildum þær og löbbuðum um í klukkutíma í kolniðamyrkri,“ segir Davíð en félagarnir komust þó á leiðarenda.

„Við fundum þetta á endanum. Rifnar gallabuxur, hvít úlpa orðin brún af mold, vélin að verða batteríslaus og svona en við höfðum bara gaman af því.“

Davíð segir þá leggja áherslu á að hafa gaman af hlutunum. „Við gerum bara það sem okkur dettur í hug, búum til ævintýri. Við reynum að fara á staði sem fólk hefur kannski ekki farið á áður og setjum svona okkar krydd á þetta.“

Illa farnir verða sýndir á Vísi og er fyrsti þátturinn væntanlegur í næstu viku.

Hér fyrir neðan má sjá sýnishorn úr þættinum Illa farnir:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×