Innlent

Íhuga að kaupa Grímsstaði með láni frá Nubo og leigja honum

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Sveitarfélagið Norðurþing íhugar nú að kaupa jörðina Grímsstaði á Fjöllum með láni frá Huang Nubo og leigja honum hana síðan. Sveitarfélagið myndi þá eiga jörðina á móti ríkinu sem á fjórðungshlut. Bæjarstjóri Norðurþings er nú staddur í Peking til að hitta Nubo.

Kaupsamningur milli kínverska fjárfestisins Huang Nubo og landeigenda Grímsstaða á Fjöllum hljóðaði upp á 800 milljónir króna fyrir 72 prósenta hlut í jörðinni. Ríkið á 25 prósent og þá eru 3 prósent í eigu einstaklinga á svæðinu.

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, synjaði sem kunnugt er kaupunum staðfestingar en borgarar ríkja utan EES þurfa slíkt samþykki á grundvelli laga um eignarrétt og afnotarétt fasteigna.

Í kjölfarið sótti Nubo um undanþágu hjá iðnaðarráðherra á grundvelli nýrra laga um ívilnanir vegna nýfjárfestinga vegna langtímaleigu á Grímsstöðum á Fjöllum í því skyni að reisa þar lúxushótel, golfvöll og fleira.

Ekki er búið að taka ákvörðun um umóknina í iðnaðarráðuneytinu, en nefndin sem fjallar um hana fundaði á fimmtudag í síðustu viku og framhaldi af því var ritað bréf til Nubos þar sem óskað var eftir frekari upplýsingum.

Halldór Jóhannsson, talsmaður Nubos hér á landi, segir að ef svar ráðuneytisins verði á endanum neikvætt séu áformin í raun fokin út í veður og vind.

Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri Norðurþings, er staddur í Kína, en hann fór þangað aðfaranótt mánudags og átti að fara til Peking í dag til að funda með Huang Nubo. Eftir því sem fréttastofa kemst næst ganga áformin varðandi Grímssrtaði út á að Nubo láni sveitarfélaginu Norðurþingi fyrir kaupunum á jörðinni, leigi hana síðan af sveitarfélaginu og leigutekjurnar fari síðan í að greiða upp lánið. Þá er líka rætt um að leigan verði staðgreidd nokkur ár fram í tímann. Þetta er þó allt háð því að iðnaðarráðuneytið gefi grænt ljós, eins og áður segir. thorbjorn@stod2.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×