Lífið

Iglesias í aðgerð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Enrique Iglesias lenti í vandræðum á sviðinu í Tijuana.
Enrique Iglesias lenti í vandræðum á sviðinu í Tijuana. vísir/instagram
Tónlistamaðurinn Enrique Iglesias fór í gær í aðgerð á hönd eftir slys sem átti sér stað um helgina.

Iglesias stóð þá allur í blóði á sviðinu í Tijuana í Mexíkó eftir að hafa reynt að grípa dróna í miðju lagi.

Sjá einnig: Iglesias alblóðugur á sviðinu: Reyndi að grípa dróna

Spánverjinn hélt áfram tónleikunum og söng fyrir aðdáendur sínar í 30 mínútur eftir að hafa skorist illa á hendi.

Nú fær söngvarinn tíma til að jafna sig og stígur ekki á svið fyrr en 3. júlí í Mexíkó-borg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×