Tónlist

i-D fjallar um íslensku hiphop-senuna

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Breska tískuritið tekur þrjú atriði úr íslensku hiphop-senunni fyrir.
Breska tískuritið tekur þrjú atriði úr íslensku hiphop-senunni fyrir. Vísir/i-D
Nú eru rétt tæpar tvær vikur þar til hljómsveitin Sturla Atlas hitar upp fyrir Bieber í Kórnum. Sveitin er þegar byrjuð að vekja athygli fyrir utan landsteinana en breska tískutímaritið i-D fjallar um 101 drengina í nýjasta hefti sínu. Um er að ræða sér umfjöllun um íslenskt hiphop en þar fjallar blaðið einnig um Reykjavíkurdætur og GKR.

Drengirnir í Sturla Atlas eru kynntir sem skapandi hönnuðir og poppstjörnur sem séu við það að hita upp fyrir Justin Bieber. Í myndbandinu gera þeir lítið úr því að íslensk náttúra hafi fyllt þá sköpunarkrafti og segjast vera borgarbörn sem hafi alist upp við að horfa á popp- og hiphopp vídjó heima hjá sér.

Reykjavíkurdætur eru öllu fjörugri. Þær segja frá því að í íslensku sjónvarpi sé í góðu lagi fyrir karlmann að tala um munngælur en ef að stelpa segi einhverjum að “sjúga á sér snípinn” verði allt vitlaust.

Rapparinn GKR lýsir sjálfum sér sem viðkvæmum einstaklingi sem hafi verið alinn upp af einstæðri móður sem hlustaði á pönk og David Bowie. Hann talar svo um nafnið sitt Gaukur og segir það allt í lagi þá að bretinn kalli sig Cucumber – sem þýðir “gúrka”.

Myndband i-D um íslensku hiphop-senuna má sjá hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Sturla Atlas droppar nýju myndbandi

Tónlistarmaðurinn Sturla Atlas hefur vakið mikla athygli undanfarin misseri fyrir skemmtileg R&B lög og hafa þau mælst vel fyrir hjá landanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×