Fótbolti

Martraðabyrjun í fyrsta leik Noregs undir stjórn Lars

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Þjálfaratíð Lars Lagerback byrjaði heldur illa en það tók norska liðið aðeins mínútu að fá á sig fyrsta markið í 0-2 tapi gegn Norður-Írlandi í kvöld. Norska liðið átti inn á milli ágætis spretti en sigur Norður-írska liðsins var verðskuldaður.

Jamie Ward kom heimamönnum yfir þegar leikurinn var aðeins rúmlega mínútu gamall og Conor Washington bætti við öðru marki tíu mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks. Bæði lið fengu fín færi til að bæta við mörkum en náðu ekki að koma boltanum í netið.

Með sigrinum komust Norður-Írar upp í annað sæti C-riðilsins með tíu stig en eru þó fimm stigum frá Þýskalandi sem eru í efsta sæti.

Á sama tíma unnu Skotar nauman 1-0 sigur á Slóveníu á heimavelli en eina mark leiksins skoraði liðsfélagi Ragnars Sigurðssonar hjá Fulham, Chris Martin á 88. mínútu leiksins.

Í sama riðli sóttu Slóvakar þrjú stig til Möltu en bæði lið fengu rauð spjöld í leiknum. Slóvakar komust yfir snemma leiks en heimamenn svöruðu um hæl. Mark rétt fyrir lok fyrri hálfleiks gaf Slóvökum forskotið á ný en Adam Nemec innsiglaði sigurinn á 84. mínútu.

Þá skyldu Rúmenía og Danmörk jöfn en Pólverjar sóttu þrjú stig til Svartfjallalands og náðu um leið sex stiga forskoti á Svartfjallaland og Danmörku í E-riðli.

Úrslit kvöldsins:

Malta 1-3 Slóvakía

Svartfjallaland 1-2 Pólland

Norður-Írland 2-0 Noregur

Rúmenía 0-0 Danmörk

Skotland 1-0 Slóvenía




Fleiri fréttir

Sjá meira


×