Innlent

Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Eldhúsdagsumræður fara fram í kvöld.
Eldhúsdagsumræður fara fram í kvöld. Vísir/Ernir
Almennar stjórnmálaumræður, oft nefndar eldhúsdagsumræður, fara fram í kvöld vegna þingloka. Þær hefjast klukkan 19.35 og verða sendar út í útvarpi og sjónvarpi. Þá má fylgjast með umræðunum á Vísi í spilaranum hér að ofan.

Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir og hefur hver þingflokkur 10 mínútur í fyrstu umferð, 6 mínútur í annarri og 6 mínútur síðustu umferð. Röð flokkanna verður sú sama í öllum umferðum. Samfylkingin hefur leik, Sjálfstæðisflokkur fylgir þar á eftir, þriðji flokkur í pontu er Vinstri hreyfingin – grænt framboð, sá fjórði Framsóknarflokkur, Björt framtíð eru þau fimmtu til leiks og Píratar reka lestina.

Í tilkynningu frá Alþingi kemur eftirfarandi fram um  ræðumenn flokkanna:

„Fyrir Samfylkinguna tala Árni Páll Árnason, 4. þm. Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri Katrín Júlíusdóttir, 11. þm. Suðvesturkjördæmis, og í þeirri þriðju Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir , 5. þm. Norðvesturkjördæmis.

Ræðumenn Sjálfstæðisflokksins eru Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í fyrstu umferð, Elín Hirst, 13. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri umferð, en í þriðju umferð Vilhjálmur Árnason, 9. þm. Suðurkjördæmis.

Fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð tala Katrín Jakobsdóttir, 3. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, Ögmundur Jónasson, 8. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri, en í þriðju umferð Lilja Rafney Magnúsdóttir, 8. þm. Norðvesturkjördæmis.

Ræðumenn Framsóknarflokksins eru í fyrstu umferð Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra, Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra, í annarri, og Elsa Lára Arnardóttir, 6. þm. Norðvesturkjördæmis, í þriðju umferð.

Fyrir Bjarta framtíð tala í fyrstu umferð Óttarr Proppé, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri Brynhildur Pétursdóttir, 10. þm. Norðausturkjördæmis, en í þriðju umferð Róbert Marshall, 6. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður.

Ræðumenn Pírata eru Helgi Hrafn Gunnarsson, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, Ásta Guðrún Helgadóttir, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri, en í þriðju umferð Birgitta Jónsdóttir, 12. þm. Suðvesturkjördæmis.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×