Bílar

Hyundai kynnir "Juke“-keppinaut

Finnur Thorlacius skrifar
Líkur Nissan Juke en þó allur kantaðri.
Líkur Nissan Juke en þó allur kantaðri.
Nissan hefur náð góðri sölu á litla jepplingnum sínum, Juke, sem er æði sérstakur í útliti. Virðist sá góði árangur hafa gert aðra framleiðendur öfundsjúka, að minnsta kosti Hyundai.

Hér má sjá nýjustu afurð Hyundai og ekki verður annað sagt en að þessi bíll sé sláandi líkur Nissan Juke. Þessi bíll á ekki að leysa af hólmi Hyundai Tucson, heldur keppa um hylli kaupenda sem kjósa enn smærri jepplinga, líkt og Nissan Juke og Opel Mokka/Chevrolet Trax, en sá flokkur bíla hefur farið mjög vaxandi að undanförnu.

Hvort þessi bíll sem sést hér að ofan verður endanleg útfærsla er ekki víst en bíllinn á að koma á markað árið 2017. Margt getur reyndar breyst á 3 árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×