Bílar

Hyundai hlaut frumkvöðlaverðlaunin 2016

Finnur Thorlacius skrifar
Hyundai Ionic í 3 mismunandi útgáfum.
Hyundai Ionic í 3 mismunandi útgáfum.
Hyundai hlaut í byrjun mánaðarins frumkvöðlaverðlaun bílgreinarinnar 2016 (Automotive INNOVATIONS Award) fyrir fjölbreyttar nýjungar í bílaframleiðslu fyrir almennan neytendamarkað.

Í niðurstöðu dómnefndar segir m.a. að á síðasta ári hafi enginn annar bílaframleiðandi kynnt neytendum meira val um aflgjafa fyrir fólksbíla. Verðlaunin sem veitt eru árlega falla í skaut bílaframleiðenda sem skara fram úr á sviði þróunar til hagsbóta fyrir viðskiptavini.

Þess má geta að nýjasta útspil Hyundai er IONIQ, sem boðinn verður í þremur mismuandi útgáfum; sem Hybrid, Plug-In og sem hreinn rafmagnsbíll, á stóran þátt í þessum verðlaunum. Allar útfærslur hans fara í framleiðslu síðar á þessu ári og koma tvær gerðir í sýningarsalinn hjá Hyundai í Garðabæ í haust.

Verðlaunin AutomotiveINNOVATIONS Award eru veitt sameiginlega af „Center of Automotive Management (CAM)“ í Þýskalandi og PriceWaterhouseCoopers (PwC).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×