Fótbolti

Hvöttu Ronaldo til þess að koma út úr skápnum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ronaldo pirraður eí leiknum gegn Barcelona.
Ronaldo pirraður eí leiknum gegn Barcelona. vísir/getty
Í annað sinn á innan við mánuði varð Cristiano Ronaldo fyrir fordómum inn á knattspyrnuvellinum.

Er hann lék gegn Atletico Madrid um miðjan nóvember kallaði miðjumaður Atletico, Koke, hann homma í miðjum leik.

Það hefur lengi verið slúðrað um að Ronaldo sé samkynhneigður. Stuðningsmenn annarra liða hafa síðan óspart kallað hann homma.

Í leiknum gegn Barcelona um síðustu helgi sungu stuðningsmenn Barcelona til Ronaldo þar sem þeir hvöttu hann til þess að koma út úr skápnum.

Það var því líklega ekki sérstaklega leiðinlegt fyrir Ronaldo er Real jafnaði leikinn í Barcelona undir lokin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×