Hvorki forsetinn né menntamálaráðherra tóku á móti Anítu 22. júlí 2013 14:00 Hvorki menntamálaráðherra né forseti Íslands sáu sér fært að taka á móti efnilegustu hlaupakonu landsins í nótt.
Hvorki forseti Íslands né menntamálaráðherra tóku á móti Anítu Hinriksdóttur, heims- og Evrópumeistara í 800 metra hlaupi, þegar hún kom til landsins í nótt. Hefð hefur verið fyrir því að taka á móti íslenskum íþróttaköppum sem standa sig vel á mótum erlendis með viðhöfn. Prúðbúin móttökunefnd beið Anítu þegar hún kom til landsins í nótt þar á meðal Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ, og Benóný Jónsson, varaformaður Frjálsíþróttasambands Íslands. Ólafur Ragnar Grímsson forseti, verndari Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, og Illugi Gunnarsson, ráðherra íþróttamála, voru hins vegar fjarri góðu gamni. Aníta varð heimsmeistari í 800 metra hlaupi kvenna á heimsmeistaramóti 17 ára og yngri í Donetsk í Úkraínu þann 14. júlí síðastliðinn. Sex dögum síðar bætti hún við Evrópumeistaratitli í 800 metra hlaupi á EM 19 ára og yngri sem fram fór á Ítalíu. Ekki fengust svör frá skrifstofu forsetans hvers vegna Ólafur Ragnar Grímsson hefði ekki tekið á móti þessari efnilegustu hlaupakonu sem Íslendingar hafa átt. Þar eru allir í sumarfríi. Reykjavíkurborg mun aftur á móti efna til móttöku í Höfða klukkan hálf fimm í dag til heiðurs Anítu. Dagur B. Eggertsson, staðgengill borgarstjóra, mun þar taka á móti Anítu og þjálfurum hennar og færa þeim hamingjuóskir í tilefni hins glæsilega árangurs.Uppfært kl. 15.57: "Við sendum Anítu skeyti til hvatningar fyrir Evrópumótið. Í morgun sendum við henni blómvönd og heillaóskakort," segir Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra. "Síðan var búið að taka ákvörðun um að bjóða henni, fjölskyldu hennar og forystumönnum úr íþróttahreyfingunni til móttöku í ráðherrabústaðnum."
Mest lesið Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira