Lífið

Hversu vel þekkir þú framlag okkar í Eurovision?

Stefán Árni Pálsson skrifar
María stóð sig vel.
María stóð sig vel. Vísir/epa
María Ólafsdóttir söng Unbroken, framlag Íslands í Eurovision, í söngvakeppni evrópska sjónvarpsstöðva í vor og stóð sig með prýði.

Hún komst ekki áfram úr undanúrslitakvöldinu en gerði Íslendinga um allt land stolta. Ísland hafði fyrir keppnina í vor komist sjö sinnum í röð upp úr undanriðli og í úrslit Eurovision. Samt sem áður er Eurovision kvöldið ávallt eitt stærsta kvöld ársins hjá okkur Íslendingum og því er gaman að rifja þetta allt saman upp.

Hér á neðan geta lesendur spreytt sig í skemmtilegum leik um það hversu vel þeir þekkja textann í laginu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×