Lífið

Hvenær á að fara heim eftir einnar nætur gaman?

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ósk og Sverrir í morgunþætti FM957 ræddu það í morgun hvenær væri best að kveðja og koma sér heim eftir einnar nætur gaman.

„Hvenær veit maður hvort maður er velkominn eða ekki daginn eftir?“ spyr Sverrir eins og heyra má í meðfylgjandi hljóðbroti. Þá segir Ósk sögu af vinkonu sinni sem lenti í því á dögunum að drengur sem hún bauð heim til sín næturlangt neitaði að fara heim til sín.

„Þessi gaur var ekki að fatta neitt,“ segir Ósk. Bætir hún við að drengurinn hafi sofið en að vinkonan hafi reynt að vekja hann með öllum, illum látum. Þegar hann svo loksins vaknaði vildi hann endilega panta pítsu en stúlkan vildi helst af öllu losna við hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×