Matur

Húsráð: Á mjög einfaldan hátt getur þú séð hvort eggið er fúlt

Stefán Árni Pálsson skrifar
Frábær aðferð.
Frábær aðferð.
Það getur verið erfitt að gera sér grein fyrir því hvort eggin þín eru skemmd eða ekki. Það sést nefnilega ekki utan á þeim hvort það er í lagi með þau, eða hvort þau eru fúl.

Margir hafa því lent í því að sjóða fúl egg og er útkoman oft á tíðum frekar ógeðsleg. Það er aftur á móti til einfalt ráð við þessu.

Þú einfaldlega setur eggið ofan í vatn og ef það flýtur þá er það ónýtt og á að fara rakleitt í ruslið. Hér fyrir neðan má sjá einfalt skýringarmyndband.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×