Lífið

Hundrað milljón króna hús í Garðabænum

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Húsið er glæsilegt, enda mikið endurnýjað.
Húsið er glæsilegt, enda mikið endurnýjað.
Eitthundrað milljón króna hús er til sölu á Arnarnesinu í Garðabæ. Húsið er hið glæsilegasta, eins og sjá má á myndunum sem fylgja.

Á fasteignavef Vísis kemur fram að húsið sé mikið endurnýjað. Húsið var hannað af Kjartani Sveinnsyni, byggt árið 1976 með möguleika á  aukaíbúð með sér-inngangi. Húsið skiptist í tvær hæðir, báðar með sér inngangi og góðri aðkomu, eldhúsi, baðherbergi, stofu, svefnherbergjum og baðherbergi.

Húsið stendur við götuna Tjaldanes og eru þau Pétur Sigurðsson kvikmyndagerðarmaður og Jóhanna Íris Sigurðardóttir skráð til húsa þar.

Fasteignamat hússins er skráð 90,5 milljónir og er verðið 99 milljónir.

Fleiri myndir af þessu glæsilega húsi má sjá hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×