HS Orka gerir 2,5 milljarða orkusamning við kísilverið 17. febrúar 2011 14:41
HS Orka undirritaði í dag samning við Íslenska kísilfélagið um sölu á 30 MW raforku til kísilvers í Helguvík á tímabilinu maí 2013 til ársloka 2015. Verðmæti samningsins fyrir HS Orku eru röskar 20 milljónir dollara eða um 2,5 milljarðar króna. Í tilkynningu segir að þessi raforka sé til reiðu þar sem nú í október verða laus 35 MW úr samningi um afhendingu til álvers Norðuráls í Grundartanga en Orkuveita Reykjavíkur tekur samkvæmt samningi við þeirri sölu. Heildar orkuþörf kísilversins er um 66 MW og mun Landsvirkjun að öðru leyti annast orkusöluna til þessa áfanga kísilversins. Ástæða þessa skamma samningstíma HS Orku er sú að þá getur HS Orka haft orkuna til reiðu fyrir aðra notkun í Helguvík eða þá stækkun kísilversins ef svo ber undir. Verðmæti samningsins fyrir HS Orku eru röskar 20 milljónir dollara eða um 2,5 milljarðar króna en orkuverðið er umtalsvert hærra en samkvæmt eldri samningi. Verðið er ekki tengt álverði eða verði annarra hrámálma heldur er um fasta umsamda hækkun að ræða árlega. Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku, nefnir mikilvægi þessa fyrsta skrefs uppbyggingar í Helguvík. „Það er HS Orku mikið ánægjuefni að geta komið að þessu verkefni og tryggt framgang þessi. Bygging kísilversins er geysilega mikilvæg fyrir svæðið og landið í heild og er vonandi einungis fyrsta skrefið af mörgum til nauðsynlegrar uppbyggingar. HS Orka hefur hug þátttöku í þeirri uppbyggingu með frekari orkuöflun og væntir þess að fá til þess þau leyfi sem til þarf," segir Júlíus í tilkynningunni.
Mest lesið Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Viðskipti innlent Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Viðskipti erlent Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Viðskipti innlent Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Viðskipti innlent Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Viðskipti innlent Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Neytendur Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent Bandaríkjadalur besti kosturinn fyrir Ísland Viðskipti innlent Flug milli Kína og Keflavíkur hefst í vor Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Sjá meira