Lífið

Hringdu í mann af handahófi og tóku lagið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Konráð Jónsson birti myndband af atriðinu á Facebook.
Konráð Jónsson birti myndband af atriðinu á Facebook. vísir
Karlakórinn Esja brá á þann leik að taka lagið „Þú eina hjartans yndið mitt“ fyrir aðila sem hringt var í af handahófi.

Konráð Jónsson, lögmaður og meðlimur í kórnum, hringdi í mann að nafni Einar Kjartansson og eins og áður segir var það algjör tilviljun sem réði því.

Kórinn reið á vaðið og sungu menn „Þú Einar Kjartans yndið mitt“. Atriðið heppnaðist vel eins og sjá má hér að neðan.

Rökrétt er fyrir karlakór sem kann lagið "Þú eina hjartans yndið mitt" að velja einhvern Einar Kjartansson af handahófi ...

Posted by Konráð Jónsson on 1. júní 2015





Fleiri fréttir

Sjá meira


×