Innlent

Hreinsunarhelgi í Reykjavík

Samúel Karl Ólason skrifar
Starfsfólk Reykjavíkurborgar mun svo fara um hverfin mánudaginn 11. maí og tína pokana upp.
Starfsfólk Reykjavíkurborgar mun svo fara um hverfin mánudaginn 11. maí og tína pokana upp. Vísir/GVA
Reykjavíkurborg tekur þátt í Evrópskum hreinsunardögum 8. – 10. maí. Markmið þeirra er að fegra ásýnd borgarinnar. Íbúar geta tekið til í hverfum sínum og fundið leiðir til að draga úr sóun með breyttum venjum.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að næsta helgi sé kjörin fyrir íbúa, húsfélög, íbúasamtök og heilu göturnar til að fegra umhverfi sitt fyrir sumarið.

„Starfsfólk Reykjavíkurborgar mun svo fara um hverfin mánudaginn 11. maí og tína pokana upp. Hér er ekki átt við garðaúrgang því fólk fer sjálft með hann á endurvinnslustöðvar SORPU bs.“

Þá segir að mjög mikilvægt sé að taka til eftir veturinn og fyrir sumarið því annars er hætta á mengun ef plast og annað rusl fjúki út á haf eða festist í trjám og runnum. Evrópsku hreinsunardagarnir eru einnig ætlaðir til að vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi þess að ganga vel um umhverfi sitt og draga úr sóun.

Á vef Reykjavíkurborgar eru veitt nokkur ráð til að draga úr rusli og sóun:

Henda aldrei rusli út á götu, hætta að nota plastpoka til innkaupa og nota frekar margnota innkaupapoka, finna leiðir til að draga úr matarsóun, drekka kranavatn – ekki flöskuvatn, spara prentarann, endurnýta fatnað, samnýta stærri tæki eins og sláttuvélar, fara með skó í viðgerð í stað þess að henda þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×