Hraðlestin til Keflavíkurflugvallar sögð skila 13 milljörðum á fyrsta ári Garðar Örn Úlfarsson skrifar 16. desember 2015 07:00 Hraðlestin til Keflavíkurflugvallar í túlkun Björns Reynissonar er hann útskrifaðist úr arkitektúr frá Listaakademíunni í Kaupmannahöfn vorið 2014. Mynd/Björn Reynisson
Fyrsta árið sem hraðlest gengi milli Keflavíkur og Reykjavíkur er gert ráð fyrir að seldir verði 4,5 milljónir farmiða, sem skilar 13,5 milljarða króna tekjum. Þetta kemur fram í nýrri, óbirtri skýrslu RRV Consulting um verkefnið. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær vinnur Fluglestin þróunarfélag ehf. að því að ljúka samstarfssamningum við sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu vegna nauðsynlegra skipulagsbreytinga og lóðamála varðandi hraðlestina sem ganga á milli Leifsstöðvar og Umferðarmiðstöðvarinnar í Reykjavík. Í skýrslu RRV er farið yfir ýmsar áætlanir og tölulega þætti sem tengjast hraðlestinni. Ef allt gengur upp eiga framkvæmdir að hefjast eftir þrjú ár og verða lokið að átta árum liðnum, árið 2024. „Áætlað er að verkefnið skili jákvæðu tekjustreymi frá fyrsta ári,“ segir í skýrslunni. Yfir hálfrar aldar rekstrartímabil fái fjárfestar 15,2 prósenta árlega ávöxtun. Þá segir að hraðlestin verði ábatasöm sem einkaframtak og þurfi engin bein fjárframlög frá opinberum aðilum en að gera þurfi fjárfestingarsamninga við ríkið og fá sérstaka löggjöf um skattgreiðslur. Alls verða lestarteinarnir 49 kílómetra langir, þar af 14 kílómetrar í göngum fyrsta spölinn út úr höfuðborgarsvæðinu. Fyrir utan endastöðvarnar tvær á að vera einn viðkomustaður í suðurhluta Hafnarfjarðar. Þar verði þjónustustöð og geymsla fyrir lestarvagna. Samkvæmt skýrslunni verða lestarferðir frá klukkan fimm á morgnana til klukkan eitt eftir miðnætti. Farið verður á fimmtán mínútna fresti á annatíma þegar lestin annar 1.200 farþegum á klukkustund en með 30 mínútna millibili þess utan. Lestin mun ná 250 kílómetra hraða á klukkustund og ferðatíminn verða 15 til 18 mínútur eftir því hvort komið verður við á aukastoppistöðinni. Vitnað er til spár Isavia um þróun farþegafjölda um að komur og brottfarir farþega í alþjóðaflugi verði samtals 5,3 milljónir á árinu 2024. Alls verði 2,7 milljónir farmiða seldar vegna þessa hóps og aðrar 1,8 milljónir farmiða til annarra sem ferðist milli Reykjaness og höfuðborgarsvæðisins. Er þar átt við námsmenn og starfsmenn fyrirtækja við báða enda lestarlínunnar. Nefnd eru dæmi um fargjöld í lestum sem ganga frá flugvöllum í svipaðri fjarlægð frá borgarkjörnum. Reiknað er með að hér gætu lægstu fargjöld verið um 1.000 krónur en hæstu 4.300 krónur. Meðalfargjaldið verði hins vegar 3.100 krónur. Sem fyrr segir er gert ráð fyrir að seldir farmiðar, samtals fram og til baka, verði 4,5 milljónir árið 2024. Tíu árum síðar verði þeir orðnir 5,9 milljónir talsins. Að baki Fluglestinni standa Landsbankinn, fasteignafélagið Reitir, Kadeco á Keflavíkurflugvelli, Efla og Ístak. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er fjárfesta nú leitað bæði innanlands og utan. Áætlað er að hlutafé nemi fimmtungi heildarkostnaðarins eða um 20,6 milljörðum króna. Að öðru leyti á að greiða stofnkostnaðinn, sem í heild er 105 milljarðar króna, með lánsfé sem endurgreiðist á 27 árum með 3,0 til 4,5 prósent vöxtum. „Reiknað er með að hluthafar hafi endurheimt fjárfestingu sína að fullu á tólfta rekstrarári,“ segir í skýrslunni fyrir Fluglestina þróunarfélag sem á ensku heitir Lava Express. Fjórtán kílómetra löng göng eiga að liggja frá Vatnsmýri, undir byggðina í Fossvogi og Kópavogi og suður fyrir Hafnarfjörð.Mynd/Lava Express
Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Sjá meira