Heilsa

Hr. Hreinn sefur hjá

sigga dögg kynfræðingur skrifar
Smokkinn á, áður en typpi fer inn.
Smokkinn á, áður en typpi fer inn. Mynd/Getty
Nýleg rannsókn kannaði hvaða afsakanir eða aðferðir karlar beita konum til að sleppa við notkun smokksins í samförum, þegar konur gera kröfu um notkun hans.

Fimm algengustu aðferðirnar, og afsaknirnar, voru:

1. Sannfæra bólfélagann að ég væri svo hreinn að smokkur væri algjör óþarfi

2. Gera hana svo graða að hún muni samþykkja að sleppa smokknum

3. Segjast ekki vilja nota smokkinn því hann dregur úr unaði

4. Biðja hana beint um að nota ekki smokkinn

5. Minni á traustið á milli ykkar og því væri smokkur óþarfur

Um 80% karlmannanna í rannsókninni sögðust hafa notað eitthvað af þessu afsökunum og þá gjarnan nokkrar afsakanir í einu.

Þetta ættu að vera flestum sláandi fréttir en eru það eflaust ekki. Svo það sé alveg á hreinu þá er ekki hægt að sjá það á viðkomandi hvort kynsjúkdómar séu til staðar eða ekki.

Í ljós algengis kynsjúkdóma hér á landi þá ættu samræður um smokkinn að vera óþarfar því vinnulagið ætti að vera jafn einfalt og sjálfsagt eins og að drekka vatn: settu smokkinn á, áður en typpi fer inn.

Ef þú stundaðir óvarðar samfarir, þá gæti verið gott að kíkja á Húð og Kyn.


Tengdar fréttir

Ný tegund af smokkum

Smokkurinn er í stöðugri vöruþróun, bæði hvað varðar útlit og efni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×