Innlent

Horft verði til menntunar og hæfni í stað lífaldurs fólks

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
Aldursmunur þessara manna gæti skapað launamun óháð starfsreynslu.
Aldursmunur þessara manna gæti skapað launamun óháð starfsreynslu.
Kristín ÓlafsdóttirVísir/Arnþór
Í flestum kjarasamningum er það almenn regla að starfsaldur ákvarði laun og launaþrep. Í sumum kjarasamningum kemur fram að lífaldur einstaklinga skuli ákvarða hluta launa. Þar á meðal er kjarasamningur Starfsmannafélags Reykjavíkur við Reykjavíkurborg. Þar hefur lífaldur áhrif á launaþrep og aldursþrepin eru frá undir 20 ára aldri allt að 35 ára. Ákvæði um lífaldur eru ekki tiltekin eftir 35 ára aldur.

„Ég sjálf hef fundið fyrir þessu,“ segir Kristín Ólafsdóttir, starfsmaður Reykjavíkurborgar. Hún vann síðasta sumar fyrir verkefnið Skyldurækin þar sem hún fræddi ungt fólk meðal annar um kjaramál.

„Ég fékk sem sagt meira borgað en samstarfsfélagi minn af því að ég var tveimur árum eldri.“

Kristín segir að fáir krakkar hafi verið meðvitaðir um réttindi sín og nauðsynlegt sé að bæta fræðslu um kjaramál.

„Þau voru mörg hver úti á túni þó það hafi verið misjafnt. Það þyrfti að koma þessu betur inn í skólanna, námskrána,“ segir hún. „Mér hefur alltaf fundist þetta skrítið. Að lífaldur trompi starfsaldur.“

Inga Auðbjörg Kristjánsdóttir
Inga Auðbjörg Kristjánsdóttir, formaður Landssambands æskulýðsfélaga, tekur undir að það sé ósanngjarnt að mismuna fólki eftir lífaldri.

„Það þarf að meta menntun og hæfni einstaklinga til verðleika en ekki aldur, umbuna þér ef þú hefur reynslu á einhverju sviði en ekki eftir hversu marga hringi þú hefur farið í kringum sólina,“ segir hún.

Inga nefnir fleiri dæmi um mismunun á vinnumarkaði og bendir á nýsamþykkta kjarasamninga þar sem átján og nítján ára einstaklingar þéna 95 prósent af byrjunarlaunum tvítugra einstaklinga.

Í tilmælum Evrópusambandsins um bann við mismunun á vinnumarkaði er meðal annars tiltekið að bannað sé að mismuna eftir aldri hvað varðar aðgang að störfum, ráðningar, laun og fleira.

Tilmælin hafa enn ekki verið innleidd á Íslandi en frumvarp um innleiðingu þeirra er tilbúið í félagsmálaráðuneytinu. Einungis á eftir að leggja það fram. 

Halldór Oddsson, lögfræðingur ASÍ, segir að tilskipunin muni ekki breyta ákvæðum um lífaldur. 

„Við tökum því mjög fagnandi að tilskipunin verði loksins leidd inn í lög og það er algerlega nauðsynlegt og það verður mikil réttarbót almennt. En varðandi lífaldurinn og 95 prósent regluna þá held ég að það breytist ekki,“ segir Halldór.

„Auðvitað myndi maður vilja að allir hefðu sömu laun og góð laun. En lögfræðilega þá tel ég að þetta standist alveg skoðun. Ég held að það sé alveg margviðurkennt og hafi að einhverju leyti verið látið reyna á það, eins og fyrir Evrópudómstóli og fleira. Þau mál sem hafa fallið varðandi aldursmismunun hafi vanalega verið grófari tilvik.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×