Innlent

Hópuppsögn hjá Sérstökum saksóknara

Sunna Kristín Hilmarsdóttir. skrifar
Vísir/Stefán
16 manns var sagt upp hjá Sérstökum saksóknara í morgun. Þetta staðfestir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, í samtali við Vísi.

Um hópuppsögn er að ræða og segir Ólafur að farið verði eftir því ferli sem kveðið er á um í lögum um slíkar uppsagnir.

Ólafur segir að verið sé að fækka niður í 50 starfsmenn hjá embættinu en fjárframlög til embættisins hafa verið skorin mikið niður bæði á fjárlögum þessa árs sem og því næsta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×