Höggvið á hnút

Vísir Fastir pennar 21. maí 2011 06:00
Höggvið á hnút
Steinunn Stefánsdóttir skrifar:
Samningur ríkisins við Samband íslenskra sveitarfélaga um tónlistarkennslu á framhaldsstigi lætur kannski ekki mikið yfir sér. Engu að síður er hann þýðingarmikið skref til bóta á ófremdarástandi sem ríkt hefur um tónlistarkennslu framhaldsnema um langt skeið. Með samkomulaginu er þannig höggvið á margra ára hnút sem hefur leitt til mikilla óþæginda fyrir lengra komna tónlistarnema utan af landi sem hafa þurft að sækja nám til Reykjavíkur.

Rekstur tónlistarskóla hvílir á sveitarfélögunum. Eðli máls samkvæmt hafa minni sveitarfélög hvorki burði til að halda úti tónlistarkennslu fyrir lengra komna nemendur né eru fyrir því forsendur víða vegna fólksfæðar. Það gefur jú augaleið að erfitt getur verið að finna kennara fyrir lengra komna tónlistarnema í fámennari byggðum, auk þess sem möguleikar á samspili og öðrum námsþáttum sem hljóta að fylgja tónlistarnámi eru takmarkaðir.

Lengra komnir tónlistarnemar hafa þannig ekki átt annarra kosta völ en að sækja nám sitt til Reykjavíkur. Burðarmeiri sveitarfélög hafa greitt fyrir nám sinna ungmenna í tónlistarskólum höfuðborgarinnar samkvæmt sérstökum reglum meðan nemar úr öðrum sveitarfélögum hafa lent í vanda með að fá framlag frá heimasveitarfélögum sínum til framhaldsnáms í tónlistarskólum í borginni. Því miður hafa tónlistarnemar hreinlega þurft að hverfa frá námi af þessum sökum. Þessi aðstöðumunur tónlistarnema eftir búsetu hefur verið óþolandi og í raun ólíðanlegur.

Með samningnum nýgerða er leitast við að jafna þennan aðstöðumun ungra tónlistarnema. Með honum skuldbindur ríkið sig til að auka framlag til tónlistarkennslu á efri stigum um 250 milljónir á ári. Framlagið rennur til söngnáms á mið- og framhaldsstigi og annars tónlistarnáms á framhaldsstigi.

Samkomulagið gildir í tvö ár en á þeim tíma eiga viðræður að fara fram um framtíðarskipan mála. Einnig var samhliða undirritun samkomulagsins boðað að á haustþingi myndi menntamálaráðherra leggja fram frumvarp til laga um tónlistarskóla þar sem ákvæði samningsins yrðu útfærð og væntanlega fest í sessi.

Blómlegt starf tónlistarskólanna í landinu er grundvallarforsenda fyrir því gróskumikla tónlistarlífi sem á sér stað á Íslandi, bæði á sviði dægurtónlistar og sígildrar. Ekki má gleyma því að í tónlistarskólunum eru ekki aðeins tónlistarmennirnir sjálfir aldir upp heldur einnig margir neytendur hennar.

Það er ákaflega mikilvægt fyrir starfsskilyrði tónlistarskólanna í landinu að skýra línur varðandi ábyrgð á kostnaði vegna kennslu. Mikilvægasta bragarbótin við samkomulagið er þó fyrir nemendurna sjálfa, að þeim sé nú loks gert kleift að stunda nám sitt óháð búsetu. Samningur ríkisins og sveitarfélaganna um tónlistarkennslu á framhaldsstigi er þannig fyrst og fremst mjög mikilvægt jafnræðismál fyrir tónlistarnema á Íslandi.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Raunhæfa planið

Þegar gjaldeyrishöft voru sett á í kjölfar hrunsins töldu flestir þau tímabundna ráðstöfun...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Umsókn um málfrelsi

Fyrir seinustu alþingiskosningar bauð RÚV framboðunum að fá ókeypis kynningartíma í sjónva...  

Meira
Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eða gæði

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Þar að auki er alltof stórum hluta þeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málþófið

Í tímaþröng eru mál þæfð í öllum þjóðþingum. Tímaþröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Höggvið á hnút