Leikjavísir

Höfundar Angry Birds segja upp 130 manns

Samúel Karl Ólason skrifar
Fyrirtækið Rovio hefur sagt up 16 prósentum af starfsfólki sínu, en forsvarsmenn þess segja að fjöldi starfsmanna hafi aukist um of. Vöxtur Angry Birds leikjanna hefur verið minni en reiknað var með. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu Rovio.

Guardian segir að enn séu virkir notendur Angry Birds leikjanna um 200 milljónir. Flestir voru þeir þó í árslok 2012, eða um 263 milljónir.

Tekjur finnska fyrirtækisins í fyrra voru um 156 milljónir evra í fyrra, sem samsvarar tæpum 24 milljörðum króna. Þá fjölgaði starfsmönnum þess um 300 á síðasta ári, svo um áramótin störfuðu 800 manns hjá fyrirtækinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×