Hof og hallir

Fréttablaðið Fastir pennar 21. júní 2010 14:48
Hof og hallir
Páll Baldvin Baldvinsson skrifar:

Á síðustu metrunum verða ákafari úrtöluraddirnar að nýjar og glæsilegar byggingar í Reykjavík og á Akureyri hafi aldrei átt að rísa. "Seint séð Þuríður." Nú skal ekki hér rifjað upp hver tildrögin voru að því að Harpa og Hof voru undirbúin, hönnuð og reist. Aðdragandinn að báðum húsunum var langur og hugsjónir um byggingu þeirra kviknuðu af sárri þörf, hvorki norðan né sunnan heiða voru nein hús tiltæk til samkomuhalds þannig að sómi væri að. Og þá var sama til hvaða tónlistarnota var litið: sinfónískrar tónlistar, kórverka, hljómsveita stórra og smárra af hvaða tagi sem gafst. Íslenskum áhugamönnum um tónlist af öllu tagi var vísað í skítuga bari, íþróttahús, gamla bíósali, félagsheimili af annarri kynslóð - því ástandi varð að linna.

Víst skal ekki efast um að allur undirbúningur beggja mannvirkjanna mátti vera betri, mælieiningar um kostnaðarhækkanir á báðum húsunum eru tímabundnar og háðar mörgum ytri skilyrðum. Það er lítið gagn í að tauta nú: "Þetta gat ég gert ódýrar hefði ég átt sög", eða "þessu var ég alltaf á móti" eins og bæjarfulltrúinn á Akureyri gerir nú. Hvað ætlar hann að gera í framtíðinni? Bíða á tröppunum meðan bærinn fer í Hof?

Húsin munu þýða algera byltingu í rekstri stórra menningarstofnana: rekstrargrunni Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og Leikfélags Akureyrar er gerbylt með Hofi. Loks verður fýsilegt fyrir opinberar stofnanir að sækja norður, leikflokka, dansflokka og tónlistarhópa af öllu tagi. Hagnaður í hjarta Akureyringa og Norðlendinga verður mikill og óumræddur. Hof mun kosta talsvert í rekstri en tilkoma hússins gerir norðurströndina frá Húnaflóa að Húsavík að byggilegri stað, bætir lífsgæðin.

Harpa mun á sama máta kalla á umtalsverðar breytingar í flutningi og notum tónlistar af hvaða tagi sem hún er. Húsið er risastórt skref til ánægjuauka fyrir íbúa allt upp í Borgarfjörð og austur eftir suðurströndinni. Mannvirki sem mun hvað sem stækkun og mannfjöldaaukningu á höfuðborgarsvæðinu og í nálægum byggðum líður duga í hundruð ára - gleymi menn ekki viðhaldinu. Ekki skal það efað að yfirvöld borgar og ríkis með þau Ingibjörgu Sólrúnu og Björn Bjarnason í fararbroddi hafa ekki hugsað dæmið til enda þegar Landsbankafélögum Björgólfs Guðmundssonar var veittur réttur til að reisa Hörpu. En þýðir um það að fást nú? Ekki lokum við skólunum fokheldum, sláum fyrir kirkjurnar þótt þær geri ekki í blóðið sitt. Ekki er rekstrarkostnaðurinn á bæjarstjórnarskrifstofum og ráðhúsum metinn svo að þau hús verði að nýta með tví- eða þrísetningu. Sem þó er hægt að gera bæði með Hof og Hörpu.

Tilkoma þessara mannvirkja kallar aftur á róttæka endurskoðun á menningarpólitík ríkis og sveitarfélaga, skarpan skilning á hvað er mögulegt og hvernig má hrinda því í verk öllum íbúum landsins til yndisauka. Aðsókn að úrtölumönnum hefur aldrei verið mikil.





Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldið

Sagnfræðingar tala um að stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstæðisstjórnmál af hólmi árið 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnaður krónu

Samkeppniseftirlitið birti í síðustu viku skýrslu sína um verðþróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira
Fastir pennar 28. jan. 2012 06:00

Hindranir hugarfarsins

Eins og orðið hefur áþreifanlega vart við á undanförn...  

Meira
Fastir pennar 28. jan. 2012 06:00

Háflug og fullveldi

Þegar Benedikt Sveinsson flutti frumvarp á Alþingi um stofnun háskóla þótti ýmsum nóg um h...  

Meira
Fastir pennar 27. jan. 2012 06:00

Samkeppnin er allra hagur

Samkeppniseftirlitið kynnti í gær mikla úttekt á verðþróun og samkeppni á dagvörumarkaði. ...  

Meira
Fastir pennar 27. jan. 2012 06:00

Ekki eins og að stela bíl

Ímyndum okkur skóframleiðanda sem rekur nokkrar verslanir í litlu landi. Skóframleiðandinn...  

Meira
Fastir pennar 26. jan. 2012 06:00

Tímabært að taka sönsum

Hagfræðistofnun Háskóla Íslands hefur skilað skýrslu að beiðni ríkisstjórnarinnar þar sem ...  

Meira
Fastir pennar 26. jan. 2012 06:00

Vítahringur Vestursins

Einn ráðgjafa Clintons forseta sagðist áhugalaus um að eyða næstu jarðvist sinni sem forse...  

Meira
Fastir pennar 25. jan. 2012 06:00

Að sniðganga besta kostinn

Starfsemi Barnahúss hefur staðið frá árinu 1998. Hlutverk þess er að sinna málum barna sem...  

Meira
Fastir pennar 24. jan. 2012 06:00

Pólitísk réttarhöld

Atburðir undanfarinna daga hafa afhjúpað það endanlega, hafi verið vafi í huga nokkurs man...  

Meira
Fastir pennar 23. jan. 2012 06:00

Þrasarar og þvergirðingar

Þrjú ár liðin frá Búsáhaldabyltingu og uppgjör ganga hægt og með harmkvælum – nema n...  

Meira
Fastir pennar 23. jan. 2012 06:00

Evrópuvæðing án áhrifa

Í síðustu viku kom út viðamikil skýrsla á vegum norskra stjórnvalda, þar sem samningum Nor...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Hof og hallir