Tónlist

Hlustaðu á nýja stuttskífu með Kajak

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hér má sjá þá Hrein og Sigurmon.
Hér má sjá þá Hrein og Sigurmon.
Hljómsveitin Kajak hefur gefið út stuttskífuna Children of the Sun sem er fyrstu opinbera útgáfa sveitarinnar frá upphafi.

Platan inniheldur lögin Gold Crowned Eagle, Indiana og Wake Up sem hafa öll fengið mikla spilun á útvarpstöðvum landsins. Með útgáfunni fylgir remix af Gold Crowned Eagle eftir íslenska raftónlistarmanninn Pretty Please.

Hljómsveitin Kajak kom eins og þruma úr heiðskíru lofti inn í íslenskt tónlistarlíf og héldu margir að um erlenda stórsveit væri að ræða þegar lag þeirra Gold Crowned Eagle heyrðist fyrst í útvarpi. Tónlistinni má lýsa sem raftónlistarpoppi með frumbyggjaívafi.  Meðlimir þessarar elektrónísku sveitar eru frændurnir Hreinn Elíasson og Sigurmon Hartmann Sigurðsson.

Hér má hlusta á skífuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×