Íslenski boltinn

Hlín leikur með HK/Víkingi út tímabilið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hlín varð bikarmeistari með Blikum í fyrra.
Hlín varð bikarmeistari með Blikum í fyrra. Vísir/Andri Marinó
Breiðablik hefur lánað Hlín Gunnlaugsdóttur til HK/Víkings sem leikur í 1. deildinni.

Hlín, sem leikur í stöðu miðjumanns, hefur verið fastamaður í liði Breiðabliks á undanförnum árum.

Hún lék níu deildarleiki og skoraði tvö mörk með Breiðabliki í sumar.

HK/Víkingur situr í öðru sæti A-riðils 1. deildar með 25 stig, fimm stigum á eftir toppliði Fjölnis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×