Innlent

Hlíðarfjall opið allan sólarhringinn

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/vilhelm
Þar sem aðstæður í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar þykja einstakar til skíðaiðkunar, snjór nægur, færi gott og gott veður hefur ákvörðun verið tekin um að framlengja skíðaveturinn. Akureyrarbær greinir frá þessu.

Formlega lýkur skíðavetrinum um helgina en verða skíðalyftur ræstar aftur klukkan 12 á hádegi föstudaginn 2. maí og þær látnar ganga viðstöðulaust til miðnættis laugardaginn 3. maí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×