Innlent

Hlaupið næsta sunnudag vegna hjartadagsins

Bjarki Ármannsson skrifar
Keppendur ræstir í fyrra.
Keppendur ræstir í fyrra. Mynd/Hjartvernd
Hjartadagshlaupið, sem haldið er í tilefni alþjóðlega hjartadagsins, verður haldið í áttunda sinn næstkomandi sunnudag. Ræst verður frá Kópavogsvelli klukkan tíu og er þátttaka ókeypis.

Hjartadagurinn sjálfur er svo á mánudaginn næsta en það er Alþjóðahjartasambandið sem hvetur aðildarfélög sín um allan heim til að halda upp á hjartadaginn. Þema hjartadagsins í ár er samfélagið og umhverfi einstaklingsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×