Íslenski boltinn

HK-ingar upp í þriðja sætið í 1. deildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vísir/Daníel
Nýliðar HK í 1. deild karla í fótbolta eru komnir upp í þriðja sæti deildarinnar eftir 2-1 sigur á Tindastól í Kórnum í kvöld.

Þorvaldur Örlygsson þjálfar lið HK sem er búið að vinna 5 af fyrstu 9 leikjum sínum og hefur aðeins tapað tveimur leikjum.

Árni Arnarson og Viktor Unnar Illugason komu HK í 2-0 á fyrstu 40 mínútum leiksins en Mark Charles Magee minnkaði muninn fyrir botnlið Tindstóls eftir klukkutíma leik.

HK-liðið var að vinna sinn annan leik í röð og þann þriðja í síðustu fjórum leikjum en eftir er liðið úr Fagralundinum með 17 stig, einu minna en ÍA og þremur minna en topplið Leiknis úr Breiðholti.

Tindastólsmenn hafa ekki unnið leik í fyrstu níu umferðunum og eru aðeins með þrjú stig eða sjö stigum frá öruggu sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×