Fótbolti

Hjörtur og félagar héldu hreinu og fengu þrjú stig

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hjörtur er fastamaður í liði Bröndby.
Hjörtur er fastamaður í liði Bröndby. vísir/getty
Hjörtur Hermannsson stóð vaktina í vörn Bröndby sem bar sigurorð af Aalborg með tveimur mörkum gegn engu í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Bröndby er áfram í 2. sæti deildarinnar með 29 stig, þremur stigum á eftir toppliði FC Köbenhavn.

Hjörtur, sem er 21 árs, hefur leikið 13 af 15 deildarleikjum Bröndby á tímabilinu og skorað eitt mark. Hann kom til Bröndby frá PSV Eindhoven fyrr á árinu.

Finnski markahrókurinn Teemu Pukki kom Bröndby yfir með marki úr vítaspyrnu strax á 4. mínútu. Eftir rúmlega klukkutíma leik bætti Pólverjinn Kamil Wilczek öðru marki við og gulltryggði sigur Bröndby.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×