Innlent

Hjólaði 200 kílómetra til þess að kjósa

Þorgeir Helgason skrifar
Jón Eggert Guðmundsson þegar hann kom í mark í sumar í Hafnarfirði eftir að hafa hjólað hringinn í kringum landið.
Jón Eggert Guðmundsson þegar hann kom í mark í sumar í Hafnarfirði eftir að hafa hjólað hringinn í kringum landið. vísir/hanna
Jón Eggert Guðmundsson, hjólagarpur og tölvunarfræðingur, hjólaði sem nemur um 200 kílómetrum til þess að kjósa til Alþingis. „Þetta var þrælskemmtilegur hjólatúr,“ segir Jón en hann er búsettur í Bandaríkjunum.

Ferðalagið hófst heima hjá Jóni við Palmetto-flóa í Miami í Flórídaríki og leiðin lá að kjörræðisskrifstofu Íslands á Pompano-ströndinni. „Leiðin var falleg og lá meðfram ströndinni mestalla leiðina. Þarna er mikið af veitingastöðum og skemmtilegt mannlíf,“ segir Jón.

Ferðalagið hófst klukkan fjögur um morgun en Jón þurfti að leggja snemma af stað til þess að komast í tæka tíð á kjörræðisskrifstofuna. Ferðin gekk áfallalaust fyrir sig en hann var kominn heim tæpum tólf tímum eftir að hann lagði í hann. „Það er mikilvægt að nýta kosningaréttinn og ég hvet alla til þess að fara og kjósa, burtséð frá því hvaða flokk fólk kýs,“ segir Jón og hlær.

Jón vann það afrek síðasta sumar að hjóla strandvegi Íslands. Ferðalagið tók tæpar fjórar vikur og fór Jón um 125 kílómetra á dag. Tíu ár eru síðan Jón Eggert gekk sömu strandvegi en í bæði skiptin var markmiðið að safna áheitum fyrir Krabbameinsfélagið. „Ég hjóla reglulega langar vegalengdir og nú þyrsti mig í slíkan hjólatúr. Ég ákvað því skella mér á hjólinu til þess að kjósa. Þetta var léttur túr enda eru 200 kílómetrar ekkert svo mikið fyrir vanan mann,“ segir Jón.

Næst á dagskrá hjá Jóni er að synda í kringum Ísland. „Ég ætla að byrja á Breiðafirði af því að fólk hefur synt hann. Ég get nýtt mér þá reynslu,“ segir Jón sem reiknar með að taka sex sumur í að synda í kringum landið, í áföngum. Hann ætli að geyma Suðurlandið og Faxaflóann þar til síðast en hann kveðst þó eiga eftir að spá aðeins betur í það.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×