Innlent

Hjartaskurðlæknar í gámum við Hringbraut

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Ný vinnuaðstaða lækna við Landspítalann við Hringbraut var vígð í gær þegar nýir gámar við spítalann voru teknir í notkun.

Óskar Reykdalsson, læknir og framkvæmdastjóri rannsóknarsviðs spítalans, segir vinnuaðstöðuna vera enn eina birtingarmynd húsnæðisvanda spítalans.

Gámunum er raðað á þrjár hæðir. Á þeirri efstu eru sérfræðingar í hjartaskurðlækningum með vinnuaðstöðu utan skurðstofunnar. Á miðhæð er rannsóknarsvið Landspítalans og á fyrstu hæð eru sérfræðingar í meltingarlækningum. 

Í fréttum Stöðvar 2 var rætt við Óskar í beinni útsendingu frá hinni nýju vinnuaðstöðu læknanna og má sjá viðtalið í meðfylgjandi myndskeiði. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×