Lífið

Hitað upp fyrir Emmy

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Sjónvarpskonan Cat Deeley geislaði í fagurbleikum og sumarlegum kjól.
Sjónvarpskonan Cat Deeley geislaði í fagurbleikum og sumarlegum kjól. vísir/getty
Bílarisinn Audi blés til heljarinnar veislu í Los Angeles til að hita upp fyrir árlegu Emmy-verðlaunahátíðina sem fer fram á mánudaginn í 66. sinn.

Margt var um góða gesti eins og sést á meðfylgjandi myndum en mikil spenna ríkir vegna hátíðarinnar í ár. Er talið að þættirnir True Detective, sem skarta meðal annars Ólafi Darra, verði sigursælir á verðlaununum á mánudag.

Leikkonan Zoe Saldana gengur með sitt fyrsta barn og mætti í afskaplega smart kjól.
Leik- og söngkonan Jessica Pare seiðandi í síðkjól.
Modern Family-stjarnan Julie Bowen var í stuði.
Dascha Polanco úr Orange is the New Black.
Leikkonan Sarah Hyland er meiri krúttmonsan.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×