Lífið

Hirtu lag af Wham! og jólasvein frá Finna

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Egill Einarsson hefur vakið mikla athygli fyrir lagið Musclebells.
Egill Einarsson hefur vakið mikla athygli fyrir lagið Musclebells. Vísir/GVA
Egill Einarsson, einnig þekktur sem Gillz og DJ Muscleboy, sendi frá sér myndband við jólalagið Musclebells fyrir skemmstu á Youtube. Egill og framleiðendur myndbandsins þurftu að fjarlægja það af vefnum fljótlega, vegna ásakanna um stuld á myndskeiði sem þar var notað.

„Það var ein nokkurra sekúndna löng, sex ára gömul jólasveinaklippa sem einhver gaur frá Finnlandi á, sem við þurftum að taka út. Þessi finnski gaur hringdi í mig alveg brjálaður,“ segir Ingi Þór Bauer, framleiðandi myndbandsins hjá fyrirtækinu Ice Cold.

Piltarnir segja lögfræðinga sína hafa sótt um leyfi fyrir laginu.MYND/HAG
Ingi Þór segist hafa fundið klippuna á Youtube. Í henni er að finna feitan jólasvein en í laginu syngur Egill meðal annars um feitan jólasvein.

„Leyfið á myndbandinu sagði til um að það væri opið almenningi. Það kom svo í ljós að það var einhver annar maður búinn að setja inn klippuna á Youtube, þannig að ég tók þetta af öðrum gaur en þessum finnska og sá hafði því í raun stolið klippunni.“

Hann og Egill hlógu þó að símtalinu. „Mér finnst bara fyndið að gaur í Finnlandi hafi fundið þetta video.“



Ingi Þór Bauer, framleiðandi myndbandsins hjá fyrirtækinu Ice Cold.Mynd/Aðsend
Það er þó ekki bara myndbandið sem hefur vakið umtal á netinu því Egill og StopWaitGo hafa ekki enn fengið leyfi fyrir því að nota lagið Last Christmas með hljómsveitinni Wham! í jólalaginu sínu.

„Lögfræðingarnir okkar eru búnir að senda beiðni til Warner/Chapell og við erum að bíða eftir því að fá svar,“ segir Pálmi Ragnar Ásgeirsson hjá StopWaitGo, aðspurður.

Hann segir að auðvitað sé best að fá leyfi fyrirfram. Hugmyndin um að nota þetta lag kviknaði svo skömmu fyrir jólin að ákveðið var að kýla strax á útgáfuna. Pálmi segir jafnframt að enginn þurfi að hafa áhyggjur af því að þeir græði krónu á þessari útgáfu, að þetta sé bara gert í gamni.



Daddi Guðbergsson áhugamaður um hugverkarréttindi.Mynd/aðsend
Daddi Guðbergsson áhugamaður um hugverkarréttindi, segir að Egill og StopWaitGo hefðu átt að tryggja sér öll leyfi áður en lagið og myndbandið fóru í loftið.

„Leyfi fyrir bæði notkun myndbrota í myndböndum og notkun laga og texta, er í dag í langflestum tilfellum auðsótt og getur í sumum tilfellinum tekið aðeins part úr degi. Vandamálin verða til þegar nýtt hugverk fer í dreifingu án tilskilinna leyfa rétthafa. Ef erlendir tónlistarforleggjarar væru í aðstöðu til að fylgjast með málum hérlendis yrði dreifing á þessu umsvifalaust stöðvuð, líkt og ýmis önnur hrópleg misnotkun sem tröllríður ljósvakanum og netinu í kringum jólin ár hvert,“ segir Daddi spurður út í hans álit. 

Hann segir rót vandans einfalda. „Stærsta vandamálið er að ungt fólk sem hefur stolið afþreyingu á netinu elst upp við það og fer að vinna við til dæmis framleiðslu. Það tekur þetta brotna siðferði með sér og hugar ekki að því, þegar það fer að framleiða hugverk í viðskiptalegum tilgangi, að sækja um tilskilin leyfi eða virða lögbundin réttindi hugverkaeigenda,“ útskýrir Daddi.



Nýju útgáfu myndbandsins, sem er án finnska jólasveinsins, má finna hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×