Innlent

Hinsegin fólk á flótta fær skjól á Íslandi

Heimir Már Pétursson skrifar
Íslensk stjórnvöld hafa í fyrsta skipti ákveðið að taka á móti hinsegin flóttamönnum, en af þeim 18 flóttamönnum sem hingað verða komnir á þessu ári eru fjórir samkynhneigðir og ein transkona.

Ákveðið hefur verið að taka á móti 18 flóttamönnum þar af þrettán frá Sýrlandi, aðallega konum og börnum en sá hópur er enn í flóttamannabúðum. Það er síðan nýlunda að stjórnvöld hafa ákveðið að veita fimm hinsegin flóttamönnum hæli á Íslandi.

Þeirra á meðal eru bræðurnir Peter og Robert frá Úganda, sem flúðu ógnaröldina og ofsóknirnar sem þar ríkja gegn samkynhneigðum, jafnvel með stuðningi stjórnvalda. Dagblöðin birta líka myndir af samkynhneigðu fólki og greina frá heimilsföngum þeirra.

„Eftir að nöfn fólks eru birt í dagblöðunum, en sum dagblöð birta reglulega lista yfir „tíu mestu hommana í Úganda“, líður ekki á löngu áður en lík þeirra finnast í vegkanti einhvers staðar,“ segir Robert Mugabe Murumba.

Monica er tuttugu og þriggja ára transkona frá Líbanon sem flúði ofbeldið í fjölskyldu sinni þegar hún var tólf ára og er mjög ánægð með að vera komin til Íslands.

„Fyrst var ég mjög reið við foreldra mína. Ég var fædd svona og varð að fá að vera ég sjálf. Ég er mjög örugg með sjálfa mig og ánægð með að vera sú sem ég er.“  - Varstu fyrir líkamlegu ofbeldi? – „Já foreldrar mínir lömdu mig,“ segir Monica.

Við heyrðum meira af sögu þessara fyrstu hinsegin flóttamanna hér á landi í Íslandi í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×