Lífið

Hin sænska Pixee Fox mætti nær óþekkjanleg heim til fjölskyldunnar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þessi hefur breyst töluvert í gegnum árin.
Þessi hefur breyst töluvert í gegnum árin.
Hin sænska Pixee Fox þekkir það betur en flestir að fara í lýtaaðgerðir en hún hefur skellt sér í um hundrað slíkar.

Fox er aðeins 26 ára og ávallt verið hennar draumur að líta út eins og Barbie. Hún hefur til að myndað látið fjarlægja sex rifbein úr sér til að minnka mittisstærð hennar.

Töluvert er fjallað um líferni Fox á vefstjónvarpsstöðinni Barcroft og birtist hún reglulega í þáttunum Hooked on the Look. Á dögunum fór hún frá Bandaríkjunum heim aftur til Svíþjóðar til að hitta fjölskyldu sína.

Það er skemmst fá því að segja að fjölskyldumeðlimir hennar þekktu hana varla en myndband af heimsókninni má sjá hér að neðan. Nútíminn greindi fyrst frá málinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×