Tónlist

Hin kóreska Adele fundin - Myndband

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Það er erfitt að ákveða hvor fer betur með lagið
Það er erfitt að ákveða hvor fer betur með lagið mynd/youtube
Tvær vikur eru síðan breska söngkonan Adele gaf út lagið Hello en það er á væntanlegri plötu söngkonunnar. Aðdáendur víða um heim hafa búið til sínar eigin útgáfur af laginu en að mati Vísis er eina besta ábreiðan frá kóreskri stúlku.

Vísir kann ekki frekari deili á stúlkunni en veit aðeins að hún er með gullfallega rödd og fer vel með lag söngkonunnar bresku. Flutning hennar má heyra hér að neðan.


Tengdar fréttir

Hlustaðu á David Attenborough taka Hello með Adele

Nýtt lag með Adele kom út á dögunum og sló það öll met. Lagið hefur fengið gríðarlega góðar viðtökur og þegar þessi frétt er skrifuð hafa um 210 milljónir manna horft á myndbandið við lagið á YouTube.

Adele skellir á Silvíu

Breska söngkonan gefur ekki mikið fyrir skrípalæti þeirrar íslensku í nýju myndbandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×