Innlent

Hetja næturinnar: „Mér finnst yndislegt að hafa getað aðstoðað“

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Böðvar Sigurðsson er var sannarlega á réttum stað á réttum tíma.
Böðvar Sigurðsson er var sannarlega á réttum stað á réttum tíma. vísir/vilhelm
„Ég var staddur í götu rétt hjá þegar ég sá eldglæringar,“ segir Böðvar Sigurðsson, leigubílsstjóri á bíl númer 295, í samtali við Vísi. Böðvar var réttur maður á réttum stað í nótt en hann kom að brunanum í Skeljatanga í Mosfellsbæ. Þrír komust frá brunanum án meiðsla.

Böðvar segir að hann hafi keyrt eins langt og hann komst og þaðan stokkið að húsinu. Þar sá hann eld loga í klæðningu ogskjólveggi við inngang í íbúðina á efri hæð hússins. „ Greip upp símann, hringdi í 112 og var með þá á línunni allan tímann. Ég þurfti að vekja íbúa í öðru húsi því ég vissi ekki í hvaða götu ég var staddur til að fá slökkviliðið á réttan stað.“

Þegar það var komið á hreint fór Böðvar ásamt manninum sem hann vakti og hóf að berja á alla glugga í kjallaraíbúðinni þar sem logaði. Á endanum náðu þeir að vekja íbúa íbúðarinnar, mann með tvö börn, þriggja og átta ára.

Keyrði til átta um morguninn

„Við tókum börnin út um glugga þarna og ég kom þeim í hús nágrannans. Ég veit ekki hvernig maðurinn komst út, hvort hann fór út um gluggann eða í gegnum útidyrnar og í gegnum eldhafið. Hann var kominn út þegar ég hafði skilað börnunum af mér,“ segir Böðvar. Fram hefur komið að heimilisfisfaðirinn komst út í gegnum útidyrnar.

„Þetta var talsverður eldur. Allur gaflinn og klæðningin loguðu auk skjólveggs sem var þarna. Eldurinn logaði ekki í íbúðinni sjálfri en þó hafi reykur og eldtungur náð inn um glugga,“ segir Böðvar. Aðspurður segir hann ekkert annað hafa komið til greina en að aðstoða eftir fremsta megni. „Maður hugsar ekkert um það í raun. Þetta gerðist bara. Ég er bara ánægður að vera á réttum stað á réttum tíma.“

Tilkynning um eldsvoðann barst um hálf fjögur í nótt. Böðvar sá eldtungurnar er hann hafði nýlokið við að skutla fólki heim og hans vakt lauk ekki með brunanum.

„Þegar allir voru óhultir fór ég aftur og keyrði til klukkan átta. Það var auðvitað mikil reykjarlykt af mér eftir þetta og einhverjir farþegar spurðu mig út í hana en hún hafði ekki mikil áhrif á þá þegar ég sagði þeim af hverju hún stafaði. Þá töluðu þeir um hana sem hetjulykt en ekki reykjarlykt,“ segir Böðvar að lokum.

Grunur leikur á að um íkveikju hafi verið að ræða.


Tengdar fréttir

Börnum bjargað út um glugga

Leigubílsstjóri varð var við eld í Mosfellsbæ í nótt og leikur grunur á að um íkveikju hafi verið að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×