Tónlist

Hestur leikur aðalhlutverk í myndbandinu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Brynhildur er lærður tamningamaður.
Brynhildur er lærður tamningamaður. Mynd/Eva Rut Hjaltadóttir
„Ég útskrifaðist sem tamningamaður árið 2002 og var að vinna við það í svolítinn tíma. Ég hafði mikinn áhuga á að hafa myndbandið hestatengt,“ segir söngkonan og tónsmiðurinn Brynhildur Oddsdóttir. Hún tók nýverið upp tónlistarmyndband við fyrstu sólósmáskífuna sína Óumflýjanlegt og fékk lánaðan graðhestinn Pilt frá Hæli í tökurnar.

„Ég hefði ekki getað fengið betri hest. Hann var algjör snillingur. Þetta er þolinmóðasti hestur sem ég hef á ævi minni kynnst. Hann stóð grafkyrr á milli taka eins og ekkert væri,“ segir Brynhildur en vinkona hennar, Eva Rut Hjaltadóttir, leikstýrði myndbandinu, tók það upp og klippti.

Brynhildur lærði á fiðlu sem krakki og lærði söng í Nýja tónlistarskólanum. Árið 2011 kláraði hún síðan tónsmíðanám við Listaháskóla Íslands. Núna er hún líka að læra á rafmagnsgítar hjá Félagi íslenskra hljómlistamanna og er á framhaldsstigi í djasssöng. Þá er hún einnig í hljómsveitinni Beebee and the Bluebirds sem gefur út plötu í maí. Það er því í nægu að snúast hjá Brynhildi.

„Lagið Óumflýjanlegt er hluti af sólóverkefninu mínu. Þetta lag er verk sem stendur eitt og sér með myndbandinu en ég ætla að gera sólóplötu á þessu ári. Það er allavega stefnan,“ segir Brynhildur. Hún treður upp á Blúshátíð Reykjavíkur á Hilton Nordica á fimmtudaginn sem sólólistamaður.

„Ég opna kvöldið en sama kvöld spila einnig Egill Ólafsson, Dóri Braga og Andrea Gylfadóttir.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×