Lífið

Herra Hnetusmjör heldur útgáfupartí

Gunnhildur Jónsdóttir skrifar
Herra Hnetusmjör verður 19 ára í dag og ætlar að gefa út sína fyrstu breiðskífu í tilefni þess.
Herra Hnetusmjör verður 19 ára í dag og ætlar að gefa út sína fyrstu breiðskífu í tilefni þess. Visir/Vilhelm
Í dag heldur Herra Hnetusmjör upp á 19 ára afmælið sitt en í tilefni dagsins ætlar hann að gefa út sína fyrstu breiðskífu. Mikil vinna hefur verið lögð í plötuna en hann segir að það séu engin lög sem gætu talist einhvers konar uppfyllingarlög.

„Markmikið er að hafa einungis slagara á plötunni.“ Í kvöld verður haldið útgáfupartý á prikinu frá klukkan 21 til klukkan 1 í nótt en þar verður platan látin renna í gegn í heild sinni. Platan verður gefins á netinu fyrir áhugasama en hún verður aðgengileg á Youtube, Spotify og Tonlist.is. „Ég vil að fólk fái að heyra tónlistina mína án endurgjalds.“

Jóhann Karlsson, sem gengur undir nafninu Joe Frazier, gerði alla taktana á plötunni en þeir hafa unnið náið saman í gegnum tíðina. Jóhann rappar einnig á fjórum lögum á plötunni en lögin eru alls tíu talsins. Platan ber nafnið Flottur Skrákur en titillinn vísar til þess hve flottur gaur Herra Hnetusmjör er í raun og veru.

Rapparinn er einn af vinsælustu röppurum landsins þrátt fyrir ungan aldur. Lög hans hafa hljómað á útvarpsstöðvum landsins síðastliðnar vikur. Það eru margir sem bíða með mikilli eftirvæntingu eftir plötunni enda eiga þeir Herra Hnetusmjör og Jóhann Karlsson eftir að spila stór hlutverk á íslensku hiphop-senunni um ókomna framtíð. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×