Lífið

Hermdu eftir 25 heimsþekktum stjörnum á innan við þremur mínútum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jay og George greinilega miklir meistarar.
Jay og George greinilega miklir meistarar.
Að vera eftirherma er erfiðara en margir halda og leggur fólk oft gríðarlega mikla vinnu í að ná að herma eftir heimsþekktum einstaklingum.

Í fjöldamörg ár hefur þetta verið gríðarlega vinsælt efni og elskar fólk að sjá góða eftirhermu. Ástralski grínistahópurinn Stuntbear gaf á dögunum frá sér skemmtilegt myndband þar sem sjá má 25 dæmi um frábærar eftirhermur, og það á aðeins tveimur og hálfri mínútu.

Þeir Jay og George fara á kostum í myndbandinu sem sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×