Íslenski boltinn

Hendrickx ökklabrotnaði ekki í Frostaskjólinu

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Heimir Guðjónsson verður án Hendrickx í einhvern tíma.
Heimir Guðjónsson verður án Hendrickx í einhvern tíma. vísir/valli
Jonathan Hendrickx, hægri bakvörður FH, er ekki ökklabrotinn eins og óttast var þegar hann var borinn af velli gegn KR í gær.

Belginn sneri mjög illa upp á ökklann í viðskiptum við Grétar Sigfinn Sigurðarson í seinni hálfleik og var fyrst talið að hann væri ökklabrotinn.

„Hann er ekki brotinn samkvæmt myndunum,“ segir Hendrickx í samtali við 433.is.

Óvíst er hversu lengi Belginn verður frá keppni, en hann fer í frekari skoðun hjá bæklunarlækni í dag.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×