Tónlist

Helgi Júlíus sendir frá sér nýja breiðskífu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Helgi Júlíus hefur áður gefið út plötu.
Helgi Júlíus hefur áður gefið út plötu. visir/anton
Hjartalæknirinn og lagasmiðurinn Helgi Júlíus gefur um þessar mundir út sína sjöttu breiðskífu. 

Um er að ræða 9 laga plötu sem hefur titilinn Tíminn.  Í þetta skiptið ber á áhrifum fönk tónlistar auk fallegra melódískra laga. Útgáfudagur er fimmtudagurinn 6. Október 2016.

Flutningur tónlistarinnar er í höndum góðra listamanna; Daði Birgisson (hljómborð), Ingi Björn Ingason (bassi), Kristinn Snær (trommur) og Ómar Guðjónsson (gítar).  Daði Birgisson sá að auki um útsetningar, hljóðupptökur og hljóðblöndun.  Söngurinn er í höndum frábærra flytjenda:  Egill Ólafsson, Elfar Friðriksson, Eyþór Ingi og Stefanía Svavarsdóttir.

Tíminn kemur út bæði á geisladisk og á stafrænu formi, og verður hún því fáanleg í öllum betri plötubúðum sem og tónlistarveitum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×