Lífið

Helgi Björns aldrei meira sexý - Myndir

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Helgi Björns varð 57 ára á árinu en spyr sem aldrei fyrr hvort það séu ekki örugglega allir sexý.
Helgi Björns varð 57 ára á árinu en spyr sem aldrei fyrr hvort það séu ekki örugglega allir sexý. Vísir/Anton Brink

Það var glatt á hjalla á Petersen svítunni í Gamla bíó í gær þegar söngvarinn Helgi Björnsson og vinir fögnuðu útgáfu nýrrar plötu, Veröldin er ný, eins og sjá má á myndunum hér að neðan.

Á plötunni má finna tíu ný lög úr smiðju Helga og þeirra á meðal slagarana Ég fer á Land Rover frá Mývatni á Kópasker og Lapis Lazuli.

„Þú verður ekki svikin af henni þessari,“ segir Helgi.

Að neðan má hlýða á slagarann Ég fer á Land Rover frá Mývatni á Kópasker.

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var bros á hverjum manni þegar Anton Brink, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, leit við.

Helgi hefur nú ákveðið að blása til útgáfutónleika til að fagna plötunni og mun einnig leika eldri slagara í bland við nýja efnið.

Á tónleikunum munu þeir Magnús Trygvason Elíasen á trommur, Guðmundur Óskar á bassa, Örn Eldjárn á gítar, Tómas Jónsson á hljómborð og Samúel J Samúelsson ásamt blásarasveit vera í stuði með Helga. 

Tónleikarnir verða haldnir þann 3. desember næstkomandi á leynilegum stað í miðbænum og verður upplýst um staðsetninguna á hádegi tónleikadags.

Einar Bárðarson lét sig að sjálfsögðu ekki vanta.Vísir/Anton
Athafnamaðurinn Friðgeir Bergsteinsson minnti á George Michael í partýinu í gær.Vísir/Anton Brink
Fólk á öllum aldri og af báðum kynjum heiðraði Helga með nærveru sinni. Feðginin Guðmundur og Anna kunna vel að meta Helga.Vísir/Anton Brink
Gestir brostu eðli málsins samkvæmt út að eyrum.Vísir/Anton Brink
Þessir eru líklegir til að mæta blási Helgi til útgáfutónleika í næstu viku.Vísir/Anton
Siggi Hall tók sér pásu frá eldamennskunni og skellti sér með góðum vinum til Helga.Vísir/Anton Brink

Uppfært klukkan 14:10 Helgi hefur ákveðið að blása til tónleika og hefur fréttinni að ofan verið breytt af þeim sökum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×