Tónlist

Heimir Rappari sendir frá sér Geimrusl

Freyr Bjarnason skrifar
Heimir Rappari hefur sent frá sér nýtt lag.
Heimir Rappari hefur sent frá sér nýtt lag.
Heimir Rappari hefur sent frá sér lagið Geimrusl (Z.O.Z.) sem er tekið af væntanlegri sólóplötu hans, George Orwell EP.

Flestir rappunnendur þekkja Heimi sem Heimirbjéjoð úr hljómsveitunum Skytturnar og Fræ.

Að undanförnu hefur hann verið hluti af tónleikateymi Kött Grá Pje, sem sló í gegn með laginu Aheybaró í fyrra.

Kött Grá Pje kemur einmitt við sögu í Geimrusli (Z.O.Z) ásamt bandarísku söngkonunni Bonnie Gregory og harmónikuleikaranum Margréti Arnarsdóttur.

Heimir vann lagið með strákunum í Lady Babuska sem aðstoða hann einnig við gerð plötunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×